Sætur og mjúkur blómailmur með krydduðum undirtón. Olían er upplífgandi, sótthreinsandi, kynörvandi, róandi, taugastyrkjandi og kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Hún er mjög góð við þunglyndi, kvíða og streitu þar sem hún er mjög róandi og styrkjandi fyrir taugakerfið.
Ylang ylang ilmkjarnaolíuna má nota í nuddolíu, í gufu og í baðið. Olían hentar vel til að gefa þvotti ilm, til dæmis með sápuskeljunum frá Living naturally sem við hjá mena.is notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni.
Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni.
Innihald 10 ml.
Olían kemur í lítilli flösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.






- Umsagnir
- Innihald
- Leiðbeiningar
- Hrein umhverfisvæn olía unnin úr jurtum og blómum.
Fyrir húð og líkamann:
Blandið nokkrum dropum af ilmolíunni saman við hlutlausa olíu, sápur, hársápur eða krem til að fá frískandi ilminn.Varist að bera olíuna beint á húðina!
Í þvottinn:
Setjið nokkra dropa af ilmolíunni í sápuhólfið fyrir þvott og þvoið samkvæmt leiðbeiningum. Gott er að nota ilmolíuna t.d. sem þvottaskeljunum frá Natural Living, þá er nokkrum dropum dreipt í bómullarpokann með sápuskeljunum.Fyrir heimilisþrifin:
Setjið nokkra dropa af olíunni í vatn og edik tli að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug