100% vegan tannþráður úr PLA jurtaplasti.
Dental Lace tannþráðurinn kemur í litlum glerglasi með skrúfuloki úr stáli og fylgir ein áfylling með. Eftir það er hægt að kaupa hjá mena.is pakkningu með tveimur áfyllingum.
Tannþráðurinn er úr PLA jurtaplasti (polylacticacid/PLA) húðaður með vaxi sem er unnið úr candelilla plöntunni og er án bragðs.
Tannþráðurinn er lífniðurbrjótanlegur (compostable).
Litlu pokarnir utan um hnyklana eru unnir úr plöntuefni og eru vottaðir niðurbrjótanlegir.
Pakkningin er úr endurunnum pappír og á hana er prentað með sojableki.
Í pakkanum eru tvær spólur með 30 metrum af tannþræði hver um sig, 60 metrar í heildina.
Glerílátið sem er 1,3 x 5 cm fer bæði vel í hillu og í tösku.
- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug