Þessi dásamlega hársápa er unnin úr ýmsum jurtum og náttúrulegum ilmkjörnum, hreinsar hárið án þess að þurrka það og er einstaklega nærandi. Lyktin er mild og hefur róandi áhrif.
Hársápan inniheldur ekki SLS efni, paraben, jarðolíu, pálmaolíu eða ilmefni.
Hársápan er vegan og er ekki prófuð á dýrum.
Helstu innihaldsefni:
Soapnuts skeljar hafa verið notaðar á grunni Ayurvedic fræðanna í aldaraðir til að meðhöndla viðkvæma húð, útbrot og ójafnvægi í hársverði. Vinnur gegn bakteríusýkingum í hári og húð og stuðlar þannig að hreinlæti og betri hárvexti.
Chickweed er jurt sem hefur róandi áhrif og vinnur gegn bólgumyndun.
Brenninettla er jurt sem er gjarnan notað í hárvörur til að minnka hárlos, flösu og til að stilla af olíukennt hár. Á þennan hátt kemst betra jafnvægi á hársvörðinn sem stuðlar að betri og heilbrigðari hárvexti.
Rósmarín er vinsæl jurt í háriðnaði þar sem hún vinnur gegn hárlosi og flösu. Hún stuðlar að betri blóðrás í hársverði og greiðir þannig aðgang nærandi efna að hárrótunum.
Marshmallow er jurt sem róar, mýkir og vinnur á móti bólgumyndun, sérstaklega í viðkvæmum hársverði sem á það til að fá útbrot. Nærandi og minnkar líkur á klofnum hárendum.
Stærðir: 200 ml & 500 ml
Hársápan kemur í plastflösku með tappa úr harðplasti með skammtara.






- Umsagnir
- Innihald
- Leiðbeiningar
-
Vatn
lífrænt Stellaria media (chickweed) þykkni
lífrænt Althaea officinalis (marshmallow) rótarþykkni
lífrænt Sapindus mukorossi (Soapnut) ávaxtaþykkni
Rosmarinus officinalis (Rosemary) blómaþykkni
Urtica dioica (Nettle) þykkni
Cocoamidopropyl betaine*
Decyl glucoside*
Peg-10 Olive Glycerides
Aloe barbadensis
Benzyl Alcohol & Salicylic Acid & Glycerin & Sorbic Acid**
Xanthan gum
Citrus bergamia (Bergamot) ávaxtaolía
Canaga odorata (Ylang Ylang) blómaolía
Linalool***
Geraniol***
Limonene**** unnið úr kókoshnetum
** Umhverfisvænt rotvarnarefni
*** Náttúrulegt innihaldsefni ilmkjarnaolíu -
Látið lófafylli af sápunni í blautt hárið og nuddið vel.
Skolið svo vel úr.
Hentar einnig sem sápa fyrir andlit og líkama.
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug