Flottur skrúbbhanski úr hör- og bómullartrefjum sem er hentugur til að þurrbursta sem og blautbursta húðina. Einnig hægt að nota til þvotta eða í öflugt nudd.
Nudd og skrúbbhanskar örva blóðrásarkerfið, gott er að nudda létt í hringi og byrja frá tám upp líkamann í átt að hjartanu svo frá fingrum í átt að hjartasvæði. Eftir skrúbbið er dásemd að bera líkamsolíu eða krem á húðina.
70% hör og 30% bómull - skrúbbhanskinn er milligrófur og því tilvalinn í öfluga húðburstun og nudd.
Má þvo á 60° C - leyfið skrúbbhanskanum að þorna á milli notkunar.
- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug