Verslunin okkar er í EKOhúsinu, Síðumúla 11
Verslunin okkar er í EKOhúsinu, Síðumúla 11
Vegan matarfilman í rúllu er framleidd úr náttúrulegum efnum, lífrænni bómull, hreinu sojavaxi, candelilla vaxi, trjákvoðu (tree resin) og lífrænni kókosolíu. Hægt að klippa niður í þær stærðir sem henta hverjum og einum.
Einfalt, plastlaust, margnota og náttúrulegt til að geyma matinn okkar, matarafganga og nestið.
Frábærir í staðinn fyrir plastfilmu eða álpappír til að pakka inn nesti. Það er auðvelt að þrífa dúkana og þeir eru niðurbrjótanlegir.
Með réttri umhirðu ættu dúkarnir að endast í eitt ár eða lengur. Eftir það er hægt að lengja líftíma þeirra með því að setja tilbúna vaxblöndu á dúkana, sjá hér.
Notkun og umhirða
Handþvoið með köldu vatni. Má ekki fara í uppþvottavél eða örbylgjuofn.
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.