Nestis- og matarpokinn er hannaður til að leysa af hólmi einnota plastpoka og rennilásapoka (zipper bag). Notkunarmöguleikarnir eru endalausir! Frábær fyrir allan mat, osta, grænmeti, ávexti, brauð, kryddjurtir, möffins, kökur og margt fleira. Hentar mjög vel í nestið og hádegismat.
Einnig má nota pokann t.d. fyrir blaut sundföt, túrnærbuxur, óhrein nærföt og margt fleira. Flottur fyrir förðunarvörurnar þínar og sem snyrtiveski fyrir tannbursta og tannkrem og til ferðalaga.
Pokinn er léttur og sterkur úr 100% hampi með húð sem jarðgerist án skaðlegra áhrifa á umhverfið.
Pokinn er gerður til að endast mörg ár. Má þvo í þvottavél, í höndunum eða uppþvottavél.
Án eiturefna, án BPA, PVC, þalata og þungamálma.
Stærð: 25 x 20 cm (cirka)
- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug