Verslunin okkar er í Síðumúla 11 (Sambúðin)
Verslunin okkar er í Síðumúla 11 (Sambúðin)
Sjálfbær - fjölnota - fallegur
Hér mætast umhverfisvæn hugsun og falleg hönnun! Framleitt úr hýði af kaffibaunum sem falla til við framleiðslu á kaffi. Verið er að nýta hráefni sem annars hefði verið hent.
Huskee vörurnar eru sterkar og endingargóðar og henta vel fyrir fyrirtæki, heimili og þá sem eru á ferðinni. Með loki á bollanum er hægt að nota hann sem ferðamál, einnig hægt að kaupa undirskál ef þú vilt njóta á kaffistofunni eða heima við.
Huskee bollinn:
- Heldur kaffinu heitu lengur
- Fer vel í hendi
- Endingargóður og margnota
- Án eiturefna (án BPA)
- Endurnýtir hráefni (kaffi husk)
- Þolir uppþvottavél
Ef einhverra hluta vegna, Huskee bollinn þinn brotnar þá veitum við 15% afslátt af öðrum Huskee vörum þegar þú skilar bollanum til okkar.
Vöruflokkar: allar vörur, Drykkir, Drykkjarílát, Eldhúsið, Ferðamál, Heimilið, Huskee, Nesti & Drykkir, Nýtt
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.