Verslunin okkar er í Síðumúla 11 (Sambúðin)
Verslunin okkar er í Síðumúla 11 (Sambúðin)
Sápa í föstu formi fyrir feldinn á hundum. Inniheldur Tea Tree olíu, citronella og Neem olíu sem fæla frá flær og skordýr og stuðla um leið að heilbrigðri húð og gljáandi feldi.
Sápan inniheldur örlítið magn af ilmkjarnaolíu og því er ekki gott að hún sé borðuð. Ekki ætti að nota hana á hvolpa, mjög smáa hunda eða hvolpafullar tíkur.
Sápan er vegan. Handgerð úr 100% náttúrulegum hráefnum.
Notkunarleiðbeiningar:
Bleytið í sápunni þar til hún freyðir og nuddið í feldinn. Skolið vel úr með hreinu vatni. Varist að sápan berist í augu hundsins.
Innihaldsefni:
Kókosolía, Pálmaolía með sjálfbærnivottun, Ólífuolía, bifurolía, vatn, þrúgukjarnaolía, repjuolía, neem olía, jojoba olía, tea tree olía, piparmynta, sítrónuolía, lavender, rósmarín, eucalyptus. Limonene*, geraniol*, citral*, citronellol*.
*Náttúruleg innihaldsefni ilmkjarnaolía.
Vöruflokkar: allar vörur, Fyrir hundinn, Hreingerning, Sápur
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.