Náttúrulegur og umhverfisvænn hreinsisvampur úr sellulósa (cellulose) fyrir andlit. Mjög góður fyrir daglega andlitshreinsun til að fjarlægja óhreinindi og farða sem og til að hreinsa svitaholurnar. Hentar viðkvæmri húð og veldur ekki ofnæmi.
Mýkið svampinn í ylvolgu vatni og kreistið úr umfram vatn. Hreinsið andlitið með því að byrja efst (enninu) og vinnið ykkur niður á við með því að strjúka svampinum frá miðju andlitinu til hliðanna. Með því að hreinsa í þessa átt hjálpar þú til við afeitrun húðarinnar. Hreinsaðu svampinn á milli ef hann verður óhreinn. Mjög mikilvægt er að þvo svampinn eftir hverja notkun, helst með lífrænni hand- og líkamssápustykki. Gott er að leyfa svampinum að þorna á milli notkunar.
Má þvo í þvottavél við 40°C
Innihaldsefni:
Hör og bómull.
Framleitt samkvæmt ISO vottun í Frakklandi úr beðmi (sellulósa) úr hör og bómull.
- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug