Verslunin okkar er í Síðumúla 11 (Sambúðin)
Verslunin okkar er í Síðumúla 11 (Sambúðin)
Nú segjum við bless við einnota hnífapör úr plasti og komum með okkar eigin zero waste hnífapör. Geymdu hnífaparasettið á handhægum stað eins og í bílnum, töskunni eða bakpokanum. Umhverfisvæn og plastlaus valkostur í stað einnota plast hnífapara þegar við borðum að heiman.
Hnífaparasettið inniheldur allt sem þarf til að njóta góðrar máltíðar, hnífur, gaffall, skeið og drykkjarrör ásamt hreinsibursta. Pakkað í bómullarveski þar sem hver hlutur hefur sitt hólf, einnig er aukahólf fyrir matarprjóna eða hvaða mataráhald sem er.
Má fara í uppþvottavél en fyrir lengri líftíma er best að handþvo áhöld úr bambus eða öðrum við.
Inniheldur:
1 x 20 cm gaffal úr bambus
1 x 20 cm hníf úr bambus
1 x 20 cm skeið úr bambus
1 x 20 cm drykkjarrör úr bambus
1 x hreinsibursti
Handhægur bómullarpoki með hólfum.
Vöruflokkar: 30% afsláttur, Áhöld, allar vörur, Bambaw, Eldhúsáhöld, Eldhúsið, Lífrænt, Nýtt
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.