Hárskol úr náttúrulegu eplaediki og blöndu af jurtum og ilmkjarnaolíum til aðstoðar í baráttunni við feitt hár og gerir það silkimjúkt og glansandi. Mismikið þarf af skolinu, 10-20 pumpur eftir þykkt og magni hárs. Leyfið skolinu að vera í hárinu í allt að 5 mínútur. Skolið úr með volgu vatni. Ediklyktin er líklega enn í hárinu eftir skolun en hún dofnar og hverfur á stuttum tíma. Skolið greiðir úr hárflækju og vinnur þannig eins og hárnæring. Einnig gefur skolið hárinu ljóma og gefur þykkt og skerpir á náttúrulegum krullum. Vinnur á móti flösu og þurrum hársverði.
Látið hárskolið ekki berast í augu og hristið vel fyrir notkun.
Varan er vegan og ekki prófuð á dýrum.
250 ml.
Innihaldsefni:
Lífrænt eplaedik, te af sítrónugrasi, piparmynta, sítrónugras, brenninettlu lauf og sítrónubörkur, vatn, optiphen (rotvarnarefni án parabena), ilmkjarnaolíur úr sítrónu, sítrónugrasi, piparmyntu og rósmarín.
- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug