Handgert hársápustykki sem er sérstaklega gert fyrir hvítt og bjart hár. Inniheldur jurtablöndu, sítrónusafa og ilmkjarnaolíur sem fjarlægir gulan tón og gefur bjart yfirbragð. Blue malva blóma te, sítrónusafi og hibiscus hreinsa hárið og gefa gráu, hvítu og ljósu hári aftur sinn bjarta lit.
Gott er að leyfa sápunni að vera í hárinu í 10 mínútur áður en hún er skoluð úr til að auka þessi áhrif.
Hársápan inniheldur einnig shea smjör og avókadó olíu sem mýkja hárið og róa hársvörðinn.
Stærð: 120 g
Innihaldefni: Kókosolía, bifurolía, ólífuolía, vistvæn pálmaolía og vottuð sem slík, vatn, þrúgukjarnaolía, shea, avókadóolía, glýserín, malva blóm, sítónusafi, hibiscusduft, sítrónuolía, limeolía, sítrónugrasolía, citral*, eugenol*, geranlol*, citronellol*, limonene*, linalool* (*úr ilmkjarnaolíum).- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug