Zao Make-up

Fluffy brush #716

Fluffy brush #716 er ætlaður til blöndunar á augnskuggum.  Við mælum með að nota hringlaga, litlar hreyfingar til að fá bestu útkomuna og mikilvægt er að hafa gaman!  

Þvoðu burstana varlega með köldu vatni, mildri sápu og skolið vel. Láttu þá þorna flata á klút.

Góðir burstar eru nauðsynlegir fyrir fallega förðun og hefur Zao Make-Up hannað breitt úrval bursta fyrir byrjendur og fagfólk. Handföng burstanna eru úr bambus og hárin eru gervi hár í stað dýrahára, vegna þess að við viljum berjast gegn misnotkun á dýrum.