Heimilisklútarnir koma í staðinn fyrir svampana, þessa gulu með grænu grófu hliðinni. Svamparnir sem við flest höfum notað mikið í gegnum tíðina eru úr plasti og við hendum þeim eftir frekar litla notkun á meðan heimilisklútarnir frá Toockies eru margnota. Þá má þvo oft og mörgum sinnum í þvottavél við 90 gráður og það má líka setja þá í þurrkarann.
Klútarnir eru tveir, annar er ljós úr vottaðri 100% lífrænni bómull og hinn er prjónaður úr náttúrulegu trefjaefni (e. jute), er brúnn á litinn og kemur í staðinn fyrir grænu hliðina á svampinum.
Þegar klútarnir hafa verið notaðir til hins ítrasta þá má klippa þá niður í blómapottinn eða henda í moltutunnuna!
Stærð: 19x19 cm
- Umsagnir
Lítil fjölskyldufyrirtæki
Við bjóðum vörur frá litlum fyrirtækjum sem framleiða vörur sínar af hugsjón
Vistvænni lífstíll
Allar vörur hjá Mena eru þróaðar með umhverfið í öndvegi
Bestu vörurnar
Hér eru aðeins vörur sem við höfum sjálf prófað og getum mælt með af heilum hug