Mena

ANDLITSRÚLLA - Rose Quartz

Frískandi -  Eykur blóðflæði - Dregur úr þrota

Andlitsrúlla eru fegurðartól sem er notað við umhirðu húðar. Talið er að það auki blóðflæði, dragi úr þrota og tónar húðina. Hún er aldagömul Asísk aðferð sem hefur verið notuð í fleiri hundruð ár.

Rúllan virkar sem andlitsnudd sem hjálpar við að draga úr þrota og bólgum, eykur teygjanleika húðarinnar, þrengir svitaholur og eykur blóðrásina. Með því að nota andlitsrúllu reglulega fær húðin þéttara yfirbragð og gerir hana unglegri. 

Quarts

Orka • Hugarró • Hreinsandi • Jákvæðni

Kvars er þekkt sem "Heilunar Meistari." Hann er mjög öflugur græðandi krystall sem hægt er að nota fyrir allt. Hreinn Kvars er þekktur fyrir að auka innblástur og sköpunargáfu með því að skapa pláss í huganum. Kvars gefur hærri meðvitund, meiri visku og skilyrðislausa hreina ás

egun og auð.

Notkun

Mælum með að nota serum eða olíu áður en rúllan er notuð. Rúllan hjálpar húðvörum að dragast betur inn í húðina. Notist 2-4 sinnum í viku.

1) Byrjaðu á hökunni og rúllaðu lárétt í átt að hárlínu. Þrýstingur ætti að vera léttur og þægilegur á húðinni.

2) Hreyfðu rúlluna upp að nefinu og rúllaðu frá nösum og út að eyrum.

3) Notaðu litla endann á andlitsrúllunni og staðsettu við innri krók augnanna. Rúllaðu í átt að hárlínu.

4) Staðsettu rúlluna á augabrúnir og rúllaðu með þeim í átt að gagnaugum.

5) Rúllaðu frá augabrún uppávið, yfir ennið og upp að hárlínu.

6) Endaði með að rúlla frá miðju ennis lárétt í átt að gagnaugum.

Til að auka kælingu og róandi áhrif, settu rúlluna í kæli áður en hún er notuð.

Virkni:

  • Dregur úr þrota
  • Bólgueyðandi
  • Eykur teygjanleika húðarinnar
  • Eykur blóðflæði
  • Þrengir svitaholur
  • Tónar og þéttir húð

Hreinsun:  Til að hreinsa andlitsrúlluna þína skaltu einfaldlega nota milda sápu og heitt vatn. Þurrkaðu vel.