Verslunin okkar er í EKOhúsinu, Síðumúla 11
„Þessum elskum kynntist ég fyrir ekki svo löngu og ég hef kolfallið fyrir þeim! Þær eru auðveldar í notkun og hreinsa vel allan þvott. Aðalkosturinn er að sjálfsögðu sá að hér fellur ekkert rusl til og engin óþarfa aukaefni eru notuð. Þær eru mildar og fara vel með litaðan þvott og þar af leiðandi þurfa þær smá aðstoð við að vinna á erfiðum blettum. Ég nota blettaeyðinn eða fljótandi sápu á bletti áður en ég set tauið í þvottavélina. Svo finnst mér lyktarleysið af þvottinum kostur. Ef mig langar í léttan ilm þá nota ég ilmkjarnaolíur í þvottinn. Lavender og Grape- olíurnar verða oftast fyrir valinu í þvottahúsinu mínu. Og þvottahúsið ilmar svo vel um leið :)“
Sápuskeljar (e. Soapnuts) eru frábær leið til þess að þvo allan þvott án kemískra þvottaefna.
Sápuskeljar (e. Soapnuts) eru teknar utan af berjum sem vaxa á tré sem heitir Sapindus mukorossi. Skeljarnar eru svo þurrkaðar. Þegar þvottaskeljarnar komast í snertingu við vatn þá losnar úr þeim náttúruleg sápa sem kallast “Sapopin” Þessar skeljar hafa verið notaðar í aldaraðir í Indlandi til þvotta. Þetta er bókstaflega þvottaefni sem vex á trjánum, grænna gerist það varla.
Þvotturinn þinn verður hreinn því þær þvo vel og þar sem þær eru svo mildar deyfa þær ekki liti líkt og tilbúið þvottaefni gerir gjarnan. Sápuskeljarnar henta fyrir allan þvott á hitastigi á bilinu 30°C-90°C ogí allar gerðir þvottavéla.
Sápuskeljar skilja ekki eftir sig lykt af þvottinum og fyrir þá sem vilja fá léttan ilm af nýþvegnu tauinu þá mælum við með því að setja nokkra dropa af ilmkjarnaolíu með í þvottavélina. Við bjóðum upp á tvær vinsælar gerðir ilmolía, sítrónu og lavender. Einnig má úða línúða yfir hreinan þvottinn til að fá ilm, til dæmis línúði með lavenderilmi.
Áfyllingin á sápuskeljarnar koma í mismunandi stærðum; 1000 gr. (allt að 480 þvottum), 500 gr. (allt að 240 þvottum) og 225 gr. (allt að 108 þvottum).
Jafnframt fylgir bómullarpoki sem notaður er í þvottavélina utan um skeljarnar.
Leiðbeiningar á íslensku er að finna í flipa hér að neðan.
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.