Verslunin okkar er í EKOhúsinu, Síðumúla 11
Saltskrúbburinn frá J&L Naturals gerir húðina silkimjúka á ný. Eingöngu náttúrulega og hrein innihaldsefni.
Gerður úr nærandi og rakagefandi kókosolíu og róandi epsom salti sem fjarlægir einnig dauðar húðfrumur af ysta laginu sem gerir húðinni kleift að drekka í sig rakann og olíuna. Inniheldur Bergamot og Eucalyptus ilmkjarnaolíur sem lífga upp og hressa við.
Notkun: Bleyttu húðina. Settu hæfilegan skammt af skrúbbnum í lófann eða nuddhanska og nuddaðu létt í hringlaga hreyfingar á þeim svæðum sem þú vilt beina athygli þinni að. Bættu við saltskrúbb að vild.
Láttu skrúbbinn sitja í 5-10 mín eða skolaðu strax af. Njóttu silkimýktar. Endurtaktu á 2-3 daga fresti til að ná sem bestum árangri.
Umbúðir: Pappi. Settu í endurvinnslutunnuna þegar skrúbburinn klárast.
Magn: 114 gr
Geymdu á þurrum og köldum stað í 12 mánuði eftir opnun.
Innihaldsefni:
Pink Himalayan Salt, Dead Sea Salt, Organic Coconut Oil, Extra Virgin Olive Oil, Bergamot Essential Oil, Eucalyptus Essential Oil.
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.