Verslunin okkar er í EKOhúsinu, Síðumúla 11

0

Karfan þín er tóm

Verandi

Verandi - Gjafapoki kaffiskrúbbur & bath soak

Gjafapoki með tveimur 100 g einingum, bath soak og kaffiskrúbbur.

Bað soak sem lyftir andanum og gera húðina silkimjúka

Kaffiskrúbbur sem framleiddur er úr kaffi, sjávarsalti, lífrænum íslenskum sjávarþarfa og hreinum olíum. Kaffið er fullkominn náttúrulegur skrúbbur, minnkar bólgur og er hlaðið andoxunarefnum sem eru góð fyrir húðina.

Fyrirtækið Verandi endurvinnur hágæða hráefni úr íslenskum matvælaiðnaði og landbúnaði sem annars færi til spillis (e. upcycle).

Af hverju bað-soak og kaffiskrúbbur frá Verandi?
– Verandi byggir á hringrásarhagkerfinu í sinni framleiðslu þ.e. að endurnota, gera við, endurnýja og endurvinna.  Hugað er að umhverfinu á öllum stigum framleiðslunnar.
– Í framleiðsluna er nýtt kaffikorgur, bygg og krækiber sem annars hefði líklega verið hent
– Innlend framleiðsla

Efni, umbúðir og framleiðsla
– 100 + 100 g.
– Innihald bað soak: Sodium Bicarbonate, Sodium Chloride (Pure Sea Salt), Citric Acid, Recycled Hordeum Vulgare (Organic barley), Recycled Empetrum Nigrum (Organic Crowberry), Vitus vinifera (Grapeseed Oil), Butyrospermum Parkii (Shea Butter), Lavandula Angustifolia (Lavender Essential Oil), Coriandrum sativum (Coriander Seed Essential Oil)
– Innihald kaffiskrúbbur: Recycled coffee ground (Coffee), Sodium Chloride (Pure Sea Salt), Prunus Dulcis (Cold-Pressed Sweet Almond Oil), Laminaria digitata (Organic Icelandic Seaweed), Citrus Paradisi (Grapefruit Essential Oil), Citrus Limon (Lemon Essential Oil)
– Byggið sem notað er í framleiðsluna, kallast bygg-ryk, hráefni sem verður eftir við framleiðslu á byggi.
– Krækiberin koma frá bænum Völlum þar sem búskapurinn er lífrænn.  Krækiberin eru endurunnin en þau eru afgangar sem falla til vegna framleiðslu á krækiberjasultu.
– Kaffikorgurinn kemur frá veitingastað Ikea á Íslandi og hefði annars líklega verið hent. Kaffið er UTZ-vottað, lífrænt og „free-trade“.
– Án PEG, parabena, súlfata og litarefna
– Varan er ekki prófað á dýrum
– Umbúðir eru úr 100% endurunnu plasti
– Framleitt á Íslandi

Notkun og umhirða
 Setjið hnefafylli af bað-soak í baðið.  Komið ykkur fyrir í baðinu, slakið á og njótið, skolið líkamann og baðkarið vel.
– Bleytið húðina vel í sturtu eða baði, berið skrúbbinn á ykkur með hringlaga hreyfingum í átt að hjartanu, gott getur verið að bíða aðeins með skrúbbinn á húðinni, skolið vel.