Verslunin okkar er í EKOhúsinu, Síðumúla 11
Handáburður gerður úr hreinum, lífrænum og náttúrulegum hráefnum. Mýkir, nærir og róar húðina. Léttur og ferskur ilmur af rós og blágresi (Geranium).
Kremið er hreint og má nota á hvaða svæði líkamans sem er.
Nuddið á þurra húð. Ef um þurrkuexem er að ræða er einnig gott að nota sápustykkiúr náttúrulegum og nærandi olíum.
Gott ráð fyrir mani- & pedicure heima í stofu:
Settu ca 1 tsk af kreminu í skál ásamt volgu vatni. Leyfðu höndunum/fótunum að vera í vatninu í 10-15 mín (má vera lengur). Klappaðu létt yfir með handklæði til að þurrka og ýttu varlega naglaböndunum aftur.
Prófaðu að setja salt eða sykur út í skálina ásamt kreminu og volgu vatni. Þá ertu komin með flottan skrúbb til að skrúbba af dauðar húðfrumur.
Magn: 60 ml
Umbúðir: Glerkrukka og endurvinnanlegt plastlok.
Innihaldsefni:
Butyrospermum parkii (Shea butter), Helianthus annuus (Sunflower) seed oil, Cera alba (Beeswax), Pelargonum graveolens (Rose geranium) flower oil, Calendula officinalis (Marigold) flower extract, Simmondsia chinensis (Jojoba) seed oil, *Geraniol, *Limonene, * Linalool, *Citral, *Citronellol.
*Náttúruleg innihaldsefni ilmkjarnaolía.
Skráðu þig og fáðu sendan fróðleik og frábær tilboð.